Losun kolefnis í framræstum mýrum á Norðurlandi
2024
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Mómýrar gegna gríðarlega mikilvægu hlutverki í kolefnishringrásinni og því í loftslagsmálum en framræsla á mýrum getur valdið umtalsverðri losun gróðurhúsalofttegunda. Meginmarkmið þessarar rannsóknar er að kanna kolefnislosun í þremur framræstum mýrum á Norðurlandi. Rannsakað verður hvort breytileiki sé á kolefnislosun milli og innan mýranna þriggja og leitast verður eftir því að skýra hvaða áhrifaþættir liggi þar mögulega að baki. Þeir áhrifaþættir sem eru sérstaklega teknir til skoðunar eru loftslag, vatnsbúskapur, gróðurfar, efnasamsetning kolefnis, sýrustig og fjarlægð frá áfoksuppsprettum. Til að ná markmiðum rannsóknarinnar var kolefnislosun mæld með gastæki á vettvangi, vatnssýni tekin til að mæla styrk uppleysts lífræns kolefnis í mýrunum og jarðvegssýni tekin úr efstu 30 cm jarðvegsins til ákvörðunar á hlutfalli steinefna og kolefnisforða. Þetta var gert með þessum hætti til að fá heildræna mynd af kolefnislosun mýranna. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna fram á talsverðan breytileika í losun kolefnis milli og innan mýra. Losun kolefnis í formi CO2 var mun meiri í mýrunum tveimur nærri áfoksuppsprettum en þar var hlutfall steinefna í jarðveginum hærra og kolefnisforði lægri. Styrkur DOC var aftur á móti afgerandi mestur í mýrinni nyrst og fjærst áfoksuppsprettum þar sem kolefnisforði var meiri, og sýrustig og vatnsstaða lægri. Líklegir áhrifaþættir á breytileika kolefnislosunarinnar milli og innan mýranna þriggja eru loftslag, þ.m.t. jarðvegshitastig og vatnsbúskapur, fjarlægð frá áfoksuppsprettum, sýrustig og efnasamsetning kolefnis. ; Peatlands play an extremely important role in the carbon cycle, but drainage of peatlands can cause huge emissions of greenhouse gases. The main goal of this study is to investigate carbon emissions in three drained mires in the north of Iceland. It will be investigated whether there is variability in carbon emissions between and within the three mires and an effort will be made to clarify which impact factors are possibly involved. The impact factors that are ...
Titel: |
Losun kolefnis í framræstum mýrum á Norðurlandi
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Marta Carrasco 1999- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2024 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|