Kennigreining samlífisbaktería Peltigera membranacea fléttna
2013
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Samlífisbakteríur fléttna hafa ekki verið rannsakaðar að miklu leyti hingað til og eru hlutverk þeirra að mestu óþekkt, en margt bendir þó til að þær séu í raun nauðsynlegur hluti af fléttusambýlinu. Í þessu verkefni var kennigreining framkvæmd á ljósóháðum samlífisbakteríum sem einangraðar voru úr Peltigera membranacea fléttusýni. Stofnar sem einangraðir voru úr fléttunni voru ræktaðir upp í hreinrækt og hæfni þeirra til niðurbrots á ákveðnum tegundum fjölliða könnuð auk þess sem athugað var hvort einhverjir stofnanna framleiddu örveruhemjandi virk efni gegn nokkrum algengum sýkingarvaldandi örverum í mönnum. Þá voru hreinræktaðir stofnar einnig tegundagreindir með hlutraðgreiningu á 16S rRNA geni þeirra auk þess sem framkvæmd var greining á örverufræðilegum fjölbreytileika í P. membranacea fléttusýni með DGGE aðferð. Heildar DNA af ræktunarskálum var einnig skimað með sértækum prímerum með Plate Wash PCR aðferð til athugunar á þeim hópum ræktanlegra baktería sem til staðar eru í fléttunni. Niðurstöður þessa verkefnis eru að fjórir stofnar sýndu jákvæða svörun í einni eða fleiri niðurbrotsprófunum og þá gat einn stofninn brotið niður alls fjórar mismunandi tegundir fjölliða. Enginn stofn reyndist hins vegar hafa örveruhemjandi virkni gegn þeim tegundum sýkla sem prófað var gegn. Raðgreining sýndi að hreinræktaðir stofnar reyndust vera tegundir innan ættkvíslanna Pseudomonas, Burkholderia og Variovorax og skimun með sértækum prímerum með Plate Wash PCR aðferð leiddi í ljós að Alphaproteobacteria væri til staðar í fléttusýninu en aðrar fylkingar var ekki unnt að greina. Lykilorð: Umhverfisörverufræði, kennigreining, samlífisbakteríur fléttna, Peltigera membranacea. ; Lichen-associated bacteria have not been widely studied. Their roles in the symbiosis are still poorly understood but nevertheless studies have indicated that these bacteria are essential part of the lichen symbiosis. In this research project, strains of non-phototrophic lichen-associated bacteria, isolated from Peltigera membranacea lichen sample, ...
Titel: |
Kennigreining samlífisbaktería Peltigera membranacea fléttna
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Margrét Eva Ásgeirsdóttir 1989- ; Háskólinn á Akureyri |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2013 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|