Samrunar og yfirtökur: Frammistaða í kjölfarið
2011
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Samrunar og yfirtökur eru hér til umfjöllunar. Þegar leið á fyrsta áratug þessarar aldar færðust yfirtökur íslenskra fyrirtækja í vöxt. Hér var einblínt á þrjú íslensk fyrirtæki sem voru áberandi á þessu sviði. Áður en fjallað var um þau var fyrst farið fræðilega yfir rök og ástæður fyrir samrunum. Þá var litið á íslenskt regluverk samruna og því næst á íslenska hlutabréfamarkaðinn. Að lokum var farið yfir helstu yfirtökur fyrirtækjanna þriggja sem öll voru skráð í Kauphöll Íslands og dregin ályktun út frá mælikvörðum á vöxt, arðsemi og gengi hlutabréfa og hvernig fyrirtækjunum vegnaði í kjölfar yfirtakanna. Fyrirtækin uxu mikið á ársgrundvelli miðað við þá vaxtamælikvarða sem lagðir voru til hliðsjónar. Arðsemi fyrirtækjanna lækkaði en eitt þeirra sýndi þó merki um að arðsemin væri að rétta úr kútnum. Gengi bréfa fyrirtækjanna hækkaði meira til skamms tíma í meirihluta tilvika í kjölfar helstu yfirtaka þeirra, en í minnihluta tilvika til lengri tíma litið. Þá mátti sjá á þróun tekjustofna fyrirtækjanna að tveimur þeirra tókst að dreifa honum eftir landsvæðum, á meðan það þriðja lagði ofurkapp á eitt landsvæði. Þá tókst einu fyrirtækjanna vel til við að auka fjölbreytni í rekstri sínum. ; Óheimilt er að prenta ritgerðina eða afrita hana.
Titel: |
Samrunar og yfirtökur: Frammistaða í kjölfarið
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Jón Sævarsson 1983- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2011 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|