Kennigreining á ljósóháðum samlífsbakteríum fléttna og hæfni þeirra til niðurbrots á mismunandi fjölliðum
2021
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Verkefnið er lokað til 02.06.2030. ; Fléttur saman standa af svepphluta og ljóstillífandi lífveru. Af þeim 20.000 fléttum sem hefur verið lýst mynda sambýli með svepp, grænþörungum og/eða blábakteríu, einnig eru bakteríur sem kallast samlífsbakteríur hluti af sambýlinu. Almennt hafa sambýlisbakteríur fléttna verið lítið rannsakaðar en rannsóknir sem að þeim snúa hefur fjölgað til muna síðasta áratug. Tegundasamsetning, ensímvirkni og vistfræðilegt hlutverk þeirra innan sambýlisins er enn þá lítt þekkt. Markmið þessa verkefnis var að raðgreina bakteríustofna frá mismunandi fléttutegundum, greina þá til ættkvísla og skoða hvaða tegundir er að finna innan fléttna. Samhliða því var ákveðið að framkvæma skálaprófun til að skima fyrir ensímvirkni stofnanna til að brjóta niður sex mismunandi fjölliður; kaseín, xylan, sellulósa, kítósan, kollagen og pektín. Niðurstöður rannsóknar sýndu að stofnar sem voru kennigreindir tilheyrðu tveimur fylkingum; Proteobacteria (62%) og Actinobacteria (38%). Alls voru greindar ættkvíslir og 11 tegundir. Við skimun á hæfni stofna til að brjóta niður fjölliður gat enginn stofn brotið niður kítósan og aðeins einn gat botið niður niður sellulósa. Þrír stofnar eða 5,1 % af heildarstofnfjölda sýndu jákvæða svörun við niðurbroti á xylan. Við skimun fyrir niðurbroti á kaseíni sýndu 26 stofnar eða 44,1 % af heildarstofnfjölda jákvæða svörun. Skimun fyrir niðurbroti á kollageni sýnd 24 stofnar eða 40,7% af heildarstofnfjölda jákvæða svörun. Alls voru 19 stofnar eða 32,3% af heildarstofnfjölda sem sýndu jákvæða svörun fyrir niðurbroti á pektíni. ; Lichens consist of a mycobiont, and one or more photosynthetic partners. In general, the symbiotic bacteria of lichens have been little studied. Species composition, enzymatic activity and ecological role within the simbiotic are still little known. The aim of this project was to sequence strains from different lichen species, classify them into genera and to examine which species are found within lichen. At the same time, it was decided to perform test ...
Titel: |
Kennigreining á ljósóháðum samlífsbakteríum fléttna og hæfni þeirra til niðurbrots á mismunandi fjölliðum
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Halla Guðmundsdóttir 1981- ; Háskólinn á Akureyri |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2021 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|