Lærdómsáhrif, samkvæmni og áhrif tímasetningar á 6 mínútna gönguprófið hjá sjúklingum með langvinna hjartabilun og langvinna lungnateppu
2010
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Sex mínútna gönguprófið er einfalt, ódýrt og auðvelt próf sem hægt er að styðjast við í meðhöndlun á hjarta- og lungnasjúkdómum. Niðurstöður prófsins geta gefið upplýsingar um hreyfigetu, dánarlíkur og líkur á spítalainnlögn. Sýnt hefur verið fram á að gönguvegalengd eykst þegar sjúklingar framkvæma prófið með stuttu millibili vegna lærdómsáhrifa. Í þessari ritgerð eru lærdómsáhrif mæld og athuguð áhrif þeirra á túlkun niðurstaðna. Auk þess var reynt að renna stoðum undir þá tilgátu að tímasetning hafi ekki áhrif á niðurstöður og athugað hvort hún standist. Þar að auki var athugað hvort munur væri á prósentu af áætlaðri gönguvegalengd milli LLT og LHB sjúklinga, hvort endurhæfing skilaði klínískt marktækri aukningu í gönguvegalengd og hvort fjöldi pakkaára sýni fylgni við prósentu af áætlaðri gönguvegalengd. Efni og aðferðir. 50 sjúklingar, 25 með LLT (14 kvk og 11 kk) og 25 með LHB (2 kvk og 23 kk) voru fengnir til að framkvæma 6 mínútna gönguprófið fjórum sinnum við innskráningu í endurhæfingu á Reykjalundi og fjórum sinnum við útskráningu. Farið var eftir stöðluðum leiðbeiningum í framkvæmd prófsins. Niðurstöður: Prósenta af áætlaðri gönguvegalengd milli sjúklinga með LLB og LHB var ekki marktækt mismunandi. Meðal gönguvegalengd miðað við besta próf hvers einstaklings fyrir endurhæfingu var 511,4 metrar og eftir endurhæfingu 558,7 metrar. Það telst ekki klínískt marktækur munur. Púls var hærri eftir endurhæfingu (+7,1, P=0,003) og súrefnismettun lægri (-2,1, P<0,001). Marktækur munur var á milli gönguprófanna fjögurra fyrir endurhæfingu og eftir endurhæfingu. Ekki var marktækur munur milli þess að nota niðurstöður úr klínískri framkvæmd (2 próf við innskrift, 1 við útskrift) og að framkvæma fjögur próf við innskrift og útskrift. Ekki fundust áhrif af tímasetningu á gönguvegalengd. Fjöldi pakkaára sýndi ekki fylgni við prósentu af áætlaðri gönguvegalengd, hvorki fyrir né eftir endurhæfingu. Umræða: Áhrif sjúkdómanna tveggja eru mjög álíka (andnauð, máttleysi), sem útskýrir af hverju hóparnir eru að ganga ...
Titel: |
Lærdómsáhrif, samkvæmni og áhrif tímasetningar á 6 mínútna gönguprófið hjá sjúklingum með langvinna hjartabilun og langvinna lungnateppu
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Egill Eydal Hákonarson 1984- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2010 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|