Getur það verið hagfellt fyrir barn að vera sjálfstæður aðili að málum er hafa veruleg áhrif á daglegt líf þess?
2020
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Markmið ritgerðarinnar er að svara grundvallarspurningum er varða aðild og aðkomu barna að málum sem hafa veruleg áhrif á daglegt líf þeirra. Með undirritun og fullgildingu barnasáttmálans urðu töluverðar jákvæðar breytingar á barnalöggjöfinni hérlendis og afstaða barna til mála er snúa að þeim hefur hlotið töluvert meira vægi. Í kjölfar þriðju valfrjálsu bókunarinnar hefur börnum, í þeim löndum er hafa undirritað bókunina, verið veitt leið til að leita réttar síns hjá barnaréttarnefndinni. Undanfarin ár hafa orðið gríðarlegar breytingar á lagaumhverfi barna. Börn hafa fengið aukinn rétt til þess að tjá sig í þeim málum er þau varða og tekið er tillit til skoðana barna í meira mæli en áður var. Með ritgerðinni er leitast við að svara því hvort það geti þjónað hagsmunum barna að fá sjálfstæða aðild í málum er hafa veruleg áhrif á daglegt líf þeirra, þá t.d. í forsjár-, lögheimilis-, umgengnis- og dagsektarmálum. Til þess að svara þeirri spurningu verður farið yfir sögulega þróun barnalöggjafarinnar á Íslandi, þær breytingar sem urðu á barnalöggjöfinni í kjölfar barnasáttmálans, þriðju valfrjálsu bókunina og kosti hennar og gagnrýni. Ítarlega er farið yfir 12. gr. barnasáttmálans og hversu mikið vægi vilji barna hefur raunverulega í málum er þau varða, bæði á stjórnsýslu- sem og á dómsstigum. Auk þess er farið ítarlega yfir hvort að aðild barna í einstaka málum, bæði hérlendis og erlendis, þjóni hagsmunum þeirra. Að lokum er staða barna hérlendis borin saman við stöðu barna annarsstaðar í heiminum. ; The aim of the thesis is to address the fundamental issues of the legal standing of children in cases which considerably affect their daily lives. The signing and the ratification of the UN CRC has led to a positive legal development and the views of children have been given more weight. Following the third optional protocol, children have been given access to a UN complaints mechanism, in countries which have ratified the protocol. Recent years have seen enormous changes in the legislation concerning children. ...
Titel: |
Getur það verið hagfellt fyrir barn að vera sjálfstæður aðili að málum er hafa veruleg áhrif á daglegt líf þess?
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Tinna Sif Guðmundsdóttir 1993- ; Háskólinn í Reykjavík |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2020 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|