Flogalyf og miðlægur skjaldvakabrestur ; Antiepileptic Drugs and Central Hypothyroidism
2014
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Inngangur: Þreyta er algeng kvörtun flogaveikra einstaklinga og hefur mikil áhrif á lífsgæði. Orsök þreytunnar er óljós. Ein kenning er sú að þreytan geti tengst flogalyfjameðferðinni. Rannsóknir þar að lútandi hafa sérstaklega beinst að elstu flogalyfjunum, svo sem fenemal (kom á markað árið 1912) þar sem slæving er einnig oftast áberandi. Þróun flogalyfjameðferðar hefur því beinst að því að finna afbrigði af fenemal með samsvarandi flogastillandi áhrifum og minni slævingu. Það leiddi til uppgötvunar fenýtóíns árið 1938. Grunur hefur verið um að flogalyf hafi einnig áhrif á skjaldkirtilshormónaöxul og þær fáu rannsóknir sem gerðar hafa verið benda til þess að flogalyf geti valdið miðlægum skjaldvakabresti (MSB, central hypothyroidism) en þá er magn skjaldkirtilshórmónsins fT4 lágt án þess að heiladingulshormónið TSH (thyroid stimulating hormone) hækki. Algengasta einkenni MSB er þreyta. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort einstaklingar á flogalyfjum séu oftar með skjaldvakabrest en almennt gerist og að athuga hvort einhverjir þættir valdi aukinni áhættu á MSB. Aðferðir: Rannsóknarhópurinn samanstóð af fullorðnum flogaveikum einstaklingum eldri en 18 ára sem voru í eftirliti á göngudeild taugadeildar Landspítala (LSH) á tímabilinu 01.01.1998 - 31.12.2011. Einstaklingar voru útilokaðir ef þeir höfðu þekktan skjaldkirtilssjúkdóm eða ef lengd flogalyfjameðferðar var styttri en 3 mánuðir. Skráð voru lyf einstaklinga og niðurstöður úr blóðmælingum á TSH og fríu týroxíni (fT4). Ef blóðgildi TSH og fT4 lá ekki fyrir voru einstaklingar boðaðir í blóðprufur. MSB var skilgreindur sem blóðgildi fT4 undir viðmiðunarmörkum og blóðgildi TSH innan viðmiðunarmarka.Við tölfræðiútreikninga voru notuð Mann-Whitney próf, fundinn var Kendall´s tau-b stikalaus fylgnistuðull og gerð tvíundargreining (logistic regression). Niðurstöður: Rannsóknarhópurinn var 165 einstaklingar (73 karlar og 92 konur). Meðalaldur var 45,6 (±15,5) ár. Meðaltalsgildi TSH var 2,2 (±1.3) mIU/L, bil <0,01–7,98 (viðmiðunargildi 0,30–4,20 mIU/L). ...
Titel: |
Flogalyf og miðlægur skjaldvakabrestur ; Antiepileptic Drugs and Central Hypothyroidism
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Margrét Jóna Einarsdóttir 1984- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2014 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|