Próffræðilegir eiginleikar íslenskrar þýðingar Bergen vinnufíknikvarðans (BWAS) ; Psychometric properties of the Icelandic translation of The Bergen work addiction scale (BWAS)
2023
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Vinnufikn hefur lítið verið rannsökuð hérlendis og hingað til hafa ekki verið til mælitæki til að meta einkenni hennar á íslensku. Tilgangur þessarar rannsóknar er að meta próffræðilega eiginleika íslenskrar þýðingar Bergen vinnufíknikvarðans (e. Bergen Work Addiction Scale, BWAS) og einnig að skoða umfang og eiginleika vinnufíknar í úrtaki af íslenskum vinnumarkaði. Um 260 þátttakendum var safnað með snjóboltaúrtaki og þeir svöruðu spurningarlista sem lagður var fyrir rafrænt. Niðurstöður bentu til þess að BWAS hafi góða próffræðilega eiginleika. Áreiðanleiki listans var góður (α = 0,83) og leitandi og staðfestandi þáttagreining sýndu einn undirliggjandi þátt. Hugtakaréttmæti BWAS var stutt með fylgni við tengdar hugsmíðar. Skor á BWAS höfðu jákvæða fylgni við vinnutengt þunglyndi, örmögnun, upplifaða streitu og mikilvægi vinnu en neikvæð fylgni var við jafnvægi vinnu og einkalífs og líðan í vinnunni. Þá var aðgreiningarréttmæti stutt með því að engin tengsl voru milli skora á BWAS og vinnuhelgunar. Í úrtakinu skimuðust 20% með vinnufíkn samkvæmt viðmiðum höfunda BWAS. Stjórnendastaða og aukin menntun höfðu tengsl við meiri einkenni vinnuhelgunar ásamt því að konur voru líklegri en karlar til þess að skimast með vinnufíkn. Ekki voru tengsl milli einkenna vinnufíknar og aldurs, starfsaldurs og vinnustunda á viku. Niðurstöður benda til þess að BWAS henti vel til skimunar á vinnufíkn og að tilefni sé til að huga meira að einkennum vinnufíknar og afleiðingum þeirra, bæði innan klínískrar sálfræði og í samfélaginu almennt. ; Very little research has thus far been done in Iceland on work addiction and no measurements to evaluate its symptoms have been translated into Icelandic until now. This study aimed to examine the properties of the Icelandic translation of the Bergen Work Addiction Scale (BWAS) and estimate the prevalence and characteristics of work addiction in a sample of Icelandic workforce individuals. Approximately 260 participants responded to an online questionnaire. The results indicate that the BWAS ...
Titel: |
Próffræðilegir eiginleikar íslenskrar þýðingar Bergen vinnufíknikvarðans (BWAS) ; Psychometric properties of the Icelandic translation of The Bergen work addiction scale (BWAS)
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Snædís Gígja Snorradóttir 1992- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2023 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|