Kítósanafleiður með bakteríudrepandi verkun: Efnasmíði, efnagreining og samanburður á virkni
2017
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Sýkalalyfjaónæmi fer sívaxandi og meðferð sýkinga verður sífellt erfiðari þar sem hefðbundin meðferðarúrræði virka ekki lengur. Vegna þessa er stöðug þörf á þróun nýrra sýklalyfja. Með aukinni þekkingu um lífsferil baktería ætti að vera hægt að finna nýstárleg efni sem verka gegn nýjum markstöðum örvera. Örverudrepandi fjölliður eru flokkur sæfiefna og eru mikilvægar sem staðgengill þeirra sæfiefna sem eru til fyrir og stundum sýklalyfja. Kítósan er fjölliða með sæfandi áhrif og hefur því örverudrepandi verkun. Kítósan er ekki leysanlegt við hlutlaust sýrustig og þess vegna hafa afleiður þess verið smíðaðar til þess að auka leysni. Virkni margra vel þekktra afleiða hefur hins vegar ekki verið mæld við sambærilegar aðstæður og því er vitneskja um samband byggingar og virkni takmörkuð. Markmið þessarar rannsóknar var að smíða nokkrar vel þekktar kítósanafleiður sem hafa katjóníska hliðarhópa, anjóníska hliðarhópa og þíólhliðarhópa með mismunandi DS (hlutfall staðgengni, e. degree of substitution) og gera nákvæma byggingargreiningu. Bakteríudrepandi virkni þeirra gegn einni Gramjákvæðri og einni Gram-neikvæðri bakteríutegund var skoðuð. Afleiðurnar voru smíðaðar eftir þekktum aðferðum og efnagreindar með 1H NMR, 13C NMR og FT-IR greiningum. Vel tókst að smíða katjónísku afleiðuna N-(2-hydroxýl)própýl-3-trímetýlammóníumkítósan klóríð (HTCC) með DS frá 0,1 til 1,1. Byggingargreining leiddi í ljós að hliðarkeðjan tengdist N-hóp kítósans. Karboxýmetýlkítósan (CMC) er anjónísk kítósanafleiða sem var efnasmíðuð með mismunandi aðferðum og mismunandi DS frá 0,16 til 1,41. Byggingargreining leiddi í ljós að hliðarhóparnir tengdust bæði N- og O-hópum og að efnasmíðaaðferðirnar eru ekki jafn sérvirkar og haldið hefur verið fram. CMC reyndist hafa minni leysni og minni örverudrepandi áhrif en talið var. Kítósan-þíóglýkólik sýra (C-TGA) var smíðuð eftir þekktum leiðum en DS reyndist vera mjög lágt (≥ 0,04). Samband byggingar og virkni efnanna var síðan skoðað og borið saman. Í ljós kom að katjóníska afleiðan ...
Titel: |
Kítósanafleiður með bakteríudrepandi verkun: Efnasmíði, efnagreining og samanburður á virkni
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Ingibjörg Kristjánsdóttir 1992- ; Íslands, Háskóli |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2017 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|