Fyrirbyggjandi fjárhagsleg endurskipulagning : áhrif tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1023 á réttarúrræði félaga til fjárhagslegrar endurskipulagningar ; Preventive restructuring frameworks : impacts of directive 2019/1023 of the European parliament and of the council for financial restructuring of companies
2020
Online
Hochschulschrift
Zugriff:
Undanfarið hafa verið að ryðja sér til rúms úrræði sem fela í sér fjárhagslega endurskipulagningu til að endurheimta rekstrarhæfni félaga í fjárhagsörðugleikum, einkum fyrirbyggjandi endurskipulagningu. Með hugtakinu fyrirbyggjandi er vísað til þess að tilgangur endurskipulagningarinnar er að fyrirbyggja ógjaldfærni í stað þess að vinna bug á ógjaldfærni. Með tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1023 er miðað að því að samræma málsmeðferð slíkra úrræða á meðal aðildarríkja Evrópusambandsins. Markmið þessarar ritgerðar er að varpa ljósi á væntanleg áhrif tilskipunarinnar á réttarúrræði félaga hér á landi til fjárhagslegrar endurskipulagningar við innleiðingu tilskipunarinnar í íslenskan rétt. Helsta niðurstaða ritgerðarinnar er að innleiða þurfi nýja málsmeðferð í lög nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. Málsmeðferðin þarf að vera aðgengileg þegar líkur eru á ógjaldfærni skuldara og veita honum og kröfuhöfum tækifæri til að útbúa og semja um endurskipulagningaráætlun. Dómstólar meta hvort nauðsynlegt sé að skipa sérfræðing til aðstoðar fyrir skuldara og kröfuhafa við gerð og viðræður um endurskipulagningaráætlun. Til þess að liðka fyrir samningaviðræðum er skuldara veitt heimild til að óska eftir greiðslustöðvun. Í lögum nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl. er þegar mælt fyrir um slíka heimild. Þó er nauðsynlegt að gera tilteknar breytingar á ákvæðum laganna um heimildina til að hún samræmist tilskipuninni. Endurskipulagningaráætlunin getur, samkvæmt tilskipuninni, falið í sér margs konar ráðstafanir til fjárhagslegrar endurskipulagningar. Leggja má áætlunina fyrir alla kröfuhafa og hluthafa félagsins til atkvæðagreiðslu, en einnig fyrir afmarkaðan hóp þeirra. Þegar endurskipulagningaráætlun hefur áhrif á fleiri en einn flokk kröfuhafa skal skipta þeim niður í atkvæðaflokka og fer fram atkvæðagreiðsla í hverjum flokki fyrir sig. Með staðfestingu dómstóla á endurskipulagningaráætlun er hægt að binda hendur mótfallinna kröfuhafa. Þá er jafnframt undir ákveðnum kringumstæðum hægt að binda atkvæðisflokk ...
Titel: |
Fyrirbyggjandi fjárhagsleg endurskipulagning : áhrif tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/1023 á réttarúrræði félaga til fjárhagslegrar endurskipulagningar ; Preventive restructuring frameworks : impacts of directive 2019/1023 of the European parliament and of the council for financial restructuring of companies
|
---|---|
Autor/in / Beteiligte Person: | Kristján Óli Ingvarsson 1995- ; Háskólinn í Reykjavík |
Link: | |
Veröffentlichung: | 2020 |
Medientyp: | Hochschulschrift |
Schlagwort: |
|
Sonstiges: |
|